Leikskólinn Akur · Tjarnabraut 1 · Reykjanesbær · Sími 421-8310 · akur@hjalli.is Vefgátt aðstandenda · Innri vefur skólans · Hjallastefnan ↗

Akur á afmæli í dag

Leikskólin Akur tók til starfa 3. september 2007. Rekstur skólans var boðinn út á byggingarstigi og var ákveðið að semja við Hjallastefnuna

3. september 2026

Akur á afmæli í dag

Leikskólin Akur tók til starfa 3. september 2007. Rekstur skólans var boðinn út á byggingarstigi og var ákveðið að semja við Hjallastefnuna. Samningar voru undirritaðir 19. júní 2007. 

Skjámynd 2026-09-03 115224.png 784.4 KB

Á þessum tíma var einn skóli í bænum sem studdist við Hjallastefnuna; leikskólinn Gimli. Sama ár og skólinn tók til starfa hófst einnig skólastarf á vegum Hjallastefnunnar í lekskólanum Velli á Ásbrú og einnig í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjanesbæ sem starfaði í eitt ár á Ásbrú en skólastarfið færðist síðar í Háaleitisskóla. 

Leikskólinn Akur hefur starfað með svipuðu sniði frá stofnun en nýr rekstraraðili tók við skólanum 1. september 2025. Sigrún Gyða Matthíasdóttir leikskólastjóri og eigandi félagsins Núrgis ehf. gerði samning við Reykjanesbæ um reksturinn en er einnig með samkomulag við Hjallastefnuna um fagstarf og umgjörð skólastarfsins. 

Akur-samningur-Nurgis.jpg 241.4 KB

← Til baka í fréttir

Við hlökkum til að heyra frá þér

Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.

📍 Tjarnabraut 1, Reykjanesbær
📞 421-8310