Við fengum skemmtilegt tækifæri á dögunum til að segja frá fjölskyldumorgnunum okkar á Utís Online og gefa innsýn í þessa mikilvægu samveru fjölskyldna og leikskólans.
25. september 2026
Síðastliðinn laugardag héldum við fyrsta fjölskyldumorgunn vetrarins og tókst hann einstaklega vel. Það var yndislegt að fá fjölskyldur barnanna í heimsókn og eiga saman notalega stund í leikskólanum.
Fjölskyldumorgnarnir okkar fengu einmitt að vera með í dagskrá Utís Online á dögunum, þar sem við fengum tækifæri til að segja frá hugmyndinni og gefa örlitla innsýn í þessa dýrmætu samveru fjölskyldna og leikskólans. Nú er myndbandið aðgengilegt fyrir þau sem vilja kynna sér verkefnið betur: https://vimeo.com/1222841814/201db18bfe?fl=pl&fe=ti
Endilega kíkið á ef þið viljið fræðast um verkefnið!
Og þá að því sem framundan er á Akri. Agalotan okkar senn á enda og næstkomandi mánudag hefst sjálfstæðislotan. Þá taka við skemmtilegar vikur þar sem við leggjum sérstaka áherslu á sjálfstæði barnanna í leik og starfi. Við æfum okkur í að gera sjálf, prófa okkur áfram, takast á við verkefni og upplifa gleðina og stoltið sem fylgir því að ná tökum á nýjum hlutum.
Við óskum ykkur fjölskyldum góðrar helgar og notalegra samverustunda næstu daga og hlökkum til að sjá ykkur hress og kát aftur í nýrri viku 💛
Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.