Leikskólinn Akur · Tjarnabraut 1 · Reykjanesbær · Sími 421-8310 · akur@hjalli.is Vefgátt aðstandenda · Innri vefur skólans · Hjallastefnan ↗

Vetrarfrí hafið á Akri

Vetrarfrí hafið á Akri! Við óskum öllum fjölskyldum notalegra daga og góðrar samveru. Í fréttinni má finna hugmyndir að skemmtilegri afþreyingu fyrir fjölskyldur í fríinu.

23. október 2026

Vetrarfrí hafið á Akri

Kæru fjölskyldur, 

Nú er vetrarfrí hafið á Akri og við vonum að þið eigið notalega daga framundan og njótið samverunnar í fríinu.

Vetrarfríið er kærkomið tækifæri til að hægja aðeins á, eiga góðar stundir saman og njóta þess að vera í fríi hvort sem það er heima við, í útiveru, með vinum og fjölskyldu eða í einhverju skemmtilegu bralli.

Fyrir þau ykkar sem langar að gera sér dagamun hefur Reykjanesbær tekið saman nokkrar hugmyndir að afþreyingu fyrir fjölskyldur í vetrarfríinu:

https://www.reykjanesbaer.is/reykjanesbaer/frettir/njotum-samverunnar-i-vetrarfriinu 

Við á Akri óskum öllum börnum og fjölskyldum þeirra yndislegs vetrarfrís. Njótið samverunnar og haustdaganna og við hlökkum svo til að sjá ykkur aftur að fríi loknu!

← Til baka í fréttir

Við hlökkum til að heyra frá þér

Hafðu samband ef þú hefur spurningar um leikskólann, Hjallastefnuna eða skráningu.

📍 Tjarnabraut 1, Reykjanesbær
📞 421-8310